Shellmótið 2006  
Vestmannaeyjum miðvikudaginn 28.júní til sunnudagsins 2.júlí
Forsíða Fréttir Úrslit dagsins Dagskrá Myndir
     
shellmot@eyjar.is

Shellmót 2005
     Þátttökufélög
 Dagskrá félaga
   Útimót
   Innimót
   Verðlaun og
 viðurkenningar
   Gestabók

Undirbúningur
   Umsókn/gjöld
 Póstlisti
   Reglur
 Til fararstjóra
 Til foreldra
 Dagskrá mótsins
 Mótssvæðið
   Eyjar í myndum
 Kort af Eyjum

Ýmislegt
   Símaskrá
   Shellmótslagið
   Vefvísir
   English summary

Eldri vefir
 2003
 2002
 2001
   2000
   1999
   1998
 1997

Póstur til ...
Shellmótsnefndar
Vefstjóra
Framkvæmdastj.

 
Minnisatriði til foreldra fyrir Shellmótið
  Undirbúningur ferðar | Foreldrar á Shellmótinu
Foreldrar sem heima sitja | Venjur og góðir siðir
     
Undirbúningur ferðar
1. Farið er fram á að foreldrar sendi börn sín hvorki með sælgæti né peninga. Af hálfu mótshaldara og fararstjóra verður séð fyrir öllum þörfum barnanna í sambandi við mat og drykk.
2. Ef foreldrar vilja koma einhverju á framfæri vegna krakkanna, t.d. ofnæmi eða eitthvað annað er þeim bent á að tala við fararstjóra eða þjálfara tímanlega.
3. Nauðsynlegur búnaður:
Hvert félag býr til sinn lista sem getur verið ítarlegri en þessi. T.d. mætir hver Keflvíkingur með kökubox t.d.muffins, kleinur eða eithvað sambærilegt að narta í. 
Dýna / Vindsæng Félagsgalli Regn og vindgalli
Svefnpoki eða sæng Keppnisskór (úti/inni) Hlý peysa
Koddi Legghlífar Úlpa
Tannbursti Stuttbuxur og sokkar Húfa
Tannkrem Sokkar Sápa / Sjampó
Aukabuxur Handklæði Þvottapoki
Sundföt Nærföt Góður keppnisandi
Góða skapið Klæðnaður fyrir 5 daga Vettlingar
Stígvel Afþreyingarefni (spil) Vatnsbrúsa
3b. Allur búnaður, hver einstök flík, skal vera mjög vel merkt með nafni,
síma og félagi.
3c. Fáið strákana í lið með ykkur að pakka svo að þeir viti hvað þeir eru
með.
3d. Allur farangur á að vera í einni tösku ekki í plastpokum
3e. Allt sælgæti bannað og ekki er leyfilegt að hafa peninga með í ferðina
3.f Fáið uppgefna GSM síma farastjóra og fylgist með símaskránni á Shellmótsvefnum, þar sem á henni munu birtast símanúmer allra liðanna.  
4. Merkið allan farangur og allan fatnað.
t.d. með nafni barns og símanúmeri eða nafni félags.
5. Virðið brottfarartíma, mætið tímalega.
6. Kostnaður á hvern þátttakanda: 
Það er ákveðið þátttökugjald fyrir hvern þátttanda á mótið, við það bætist staðfestingargjald á hvert lið, kostnaður við fararstjórn, viðbótar matur og einhver ferðakostnaður. Stundum er einhver fatnaður innifalinn í verði. Hvert félag ákveður endanlegt verð á hvern þátttakanda og hvað er innifalið.
7. Upplýsingamiðstöð:
Upplýsingamiðstöð Shellmótsins verður í Týsheimilinu við Hástein. Þar er yfirstjórn mótsins til húsa, auk þess sem þar er að finna veitingasölu og ritstjórn vefs og Shellmótsfrétta. Síminn í Týsheimilinu er 481-2861. Faxnúmerið í Týsheimilinu er 481-2751 og er öllum heimilt að láta senda skilaboð þangað.
Öll lið eiga að vera með GSM síma, þannig að auðveldast ætti að vera að hafa beint samband við sitt lið.

Auk þess er mótsstjórn með gsm síma (númer verða ljós fyrir mót):
Björgvin Eyjólfsson, mótsstjóri, 860 xxx1
Einar Friðþjófsson, framkvæmdastjóri mótsins, 860 xxx2
Hörður Óskarsson, gjaldkeri, 860 xxx3
Björn Elíasson, aðstoðar mótsstjóri / framkvæmdastjóri, 860 xxx3
Jóhann Jónsson, vallarstjóri, 860 0004
Jónas Sigurðsson, ritstjóri miðla, 860 xxx5
Birgir Hrafn Hafsteinsson, tölvustjóri, 860 xxx6
8. Eftir Shellmótið verður öllum óskilamunum komið fyrir á skrifstou ÍBV í Þórsheimilinu og er hægt að hringja þangað í síma 481-2060 og biðja starfsmann ÍBV að leita í bunkanum - við skulum því merkja fatnað barnanna mjög vel.
9. Veistu hver er fararstjóri og símanúmer hans ?
10. Ef foreldrar vilja fá fréttir af börnunum þá er þeim velkomið að hringja í fararstjórn á hverjum degi. Þetta er einungis hugsað til að foreldrar geti fullvissað sig um að allt gangi vel, en ekki er gert ráð fyrir að börnin verði á staðnum til að tala við foreldra. 

Til að fá að vita um árangur í mótinu skal nota símatíma hvers liðs eða fá send SMS skilaboð eftir hvern leik.
11. Kanntu Shellmótslagið ?
Efst á síðu

Foreldrar á Shellmótinu
1. Foreldrar eiga lika að mæta timanlega á alla atburði.
2. Áhersla er lögð á að foreldrar horfi á alla leiki síns félags, ef kostur er.
3. Hvetjum liðið okkar og félagið okkar, ekki einstaka leikmenn og látið dómarann í friði.
4. Fararstjórn hvers félags deilir verkefnum á sína foreldra.
Ef ykkur vantar verkefni, talið við fararstjórn ykkar félags, ekki vaða í neitt án samráðs við fararstjóra.
5. Ef foreldri þarf að kvarta við mótsstjórn eða gera einhverja athugasemd við framkvæmd mótsins, þá skal fara með þessa kvörtun til yfirfararstjóra viðkomandi félags. Yfirfararstjóri leggur svo málið fyrir mótsstjórn, ef ástæða er til. Virðið úrskurði fararstjóra og mótsstjórnar.
6. Foreldrar fá næg verkefni á svona móti. Vel skipulagður hópur deilir verkefnum á foreldra og gætir þess að allir fái góð frí inn á milli.
Efst á síðu

Foreldrar sem heima sitja
1. Ferð á Shellmót er oft fyrsta ferð barns að heiman án foreldra.
Fylgist með öllu mótinu í gegnum vefinn og lofið krakkanum að upplifa fyrstu ferðina að heiman.
2. Myndir og allar upplýsingar um úrslit birtast á vefnum.
3. Ertu með nafn og símanúmer fararstjóra?
4. Með tilkomu farsíma er auðvelt að ná símasambandi við hvern hóp á Shellmótinu.
Venjan er að láta krakkana í friði og ekki tala við þá á meðan á mótinu stendur. En það er allt í lagi að senda kveðjur með SMS skilaboðum og skrifa kveðjur í gestabókina á vefnum.
Efst á síðu

Venjur og góðir siðir
  Sjá hér
Efst á síðu

     
Umsjón síðu: shellmot@eyjar.is.
    Skrifstofa Shellmóts Týsheimilinu v/Hástein S: 481-2861 Fax: 481-2751
    Póstföng: Shellmótnefnd & vefstjóri | Framkvæmdastjóri Shellmóts
    Upplýsingar: Shellmótsnefndin
     
    [Bókasafn Vestmannaeyja | Vöruvals-Pæjumót ÍBV | Vestmannaeyjar | Í.S.Í | Skeljungur | Coca Cola | Tölvun í Eyjum ]