| Minnisatriði fyrir fararstjóra á Shellmót |
| Panta far | Staðfestingargjald
| Pistill | Hópmynd |
| |
| Panta far
út í Eyjar |
| |
ATHUGIÐ: Engin fargjöld eru innifalin í mótsgjaldi og hver hópur sér um sig. Pantið tímanlega, hvort sem komið er með flugi eða Herjólfi. |
| |
Með flugi:
Þau félög sem koma með flugi, verða að sjá alfarið sjálf um að panta og semja við flugfélag.
Flugfargjaldið er til viðbótar þátttökugjaldinu.
Flugfélag Vestmannaeyja, sími 481-3255, fax 481-2652,
eyjaflug@eyjar.is
Flugfélagið Jórvík,
sími 533 15 00, 481 36 06
Íslandsflug, sími 570 80
90
|
| |
Með Herjólfi:
Þau félög sem ferðast með Herjólfi verða að panta far fyrir farþega og bíla tímanlega.
Herjólfur, sími 481 2800
Munið að það er ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára með Herjólfi, en það þarf að panta far fyrir alla.
Athugið einnig að hægt er að ná ódýrari fargjöldum með Herjólfi, fyrir fullorðna og bíla, með því að kaupa einingarmiða í afgreiðslunni í Þorlákshöfn fyrir brottför.
Sjá
heimasíðu Herjólfs. |
| Efst
á síðu |
|
| Staðfestingargjald |
| |
Félög þurfa að greiða kr. 10.000
í staðfestingargjald fyrir hvert lið sem þau mæta með á
Shellmótið. Staðfestingargjaldið skal greitt fyrir 16.maí.
Hlaupareikningur í Íslandsbanka Vestmannaeyjum nr. 3234
það er banki / höfuðbók /númer : 0582 - 26 - 3234
kennitala 680197-2029
Vinsamlegast sendið kvittun á:
Shellmótið í Eyjum
Hörður Óskarsson
Hrauntún 12
900 Vestmannaeyjar |
| Efst
á síðu |
|
| Senda
pistil um starfið í 6.flokki |
| |
Vinsamlegast sendið a.m.k. stuttan pistill til okkar og segið frá starfinu hjá 6. flokki í félaginu.
Ef áhugi er að hafa þetta veglegt, þá er ekkert mál að fá heila síðu eða meira.
Senda má skannaðar myndir eða digital myndir,eins margar og þið viljið.
Mesta leyfileg stærð mynda er 50kb. Vinsamlegast ekki senda meira en 500kb í hverju skeyti.
Vinsamlegast sendið sem allra fyrst.
Efnið sem berst verður sett á síðu viðkomandi félags á vef
Shellmótsins. |
| Efst
á síðu |
|
| Hópmynd
af liðum |
| |
Hópmynd af liðum til birtingar í mótsblaði. Vinsamlegast verið
tímanlega með myndirnar.
Senda má myndir á tölvutæku formi, lesanlegar í PC tölvu.
Vinsamlegast veljið eina mynd til birtingar ekki senda bunka til okkar.
Sendið myndir til:
Tölvupóstur: shellmot@eyjar.is
Landpóstur: Shellmótsnefnd, b/t Einars Friðþjófssonar, skrifstofu ÍBV, 900 Vestmannaeyjar. |
| Efst
á síðu |
|
| |
| Umsjón síðu: shellmot@eyjar.is. |