| Góðir siðir
og almennar reglur |
| Reglur Shellmótsins
| Nánar um jafntefli |
| |
| LEIÐBEININGAR til fararstjóra, þjálfara, leikmanna og foreldra: |
| Fótbolti er skemmtun: |
| |
Þessi skemmtun skiptir okkur öll máli. Það er sérstök ánægja að geta boðið leikmönnum okkar að leika gegn liðum frá hinum ýmsu stöðum af landinu. Kennið leikmönnum að endurspegla þessa ánægju í leik og framkomu á Shellmótinu, félagi sínu til framdráttar. |
| Stundvísi er viðhöfð á Shellmóti: |
| |
Alltaf. |
| Leikmönnum skal kennt: |
| |
Að virða ákörðun dómara án spurninga eða athugasemda. Þetta skal einnig brýna fyrir foreldrum og öðrum aðstandendum liðanna. |
| Þjálfarar skulu alltaf styðja úrskurði
... |
| |
dómara leiksins, hvort sem þeir eru réttir eða rangir.
Þjálfarar og foreldrar skulu aldrei efast um hæfni dómarans svo leikmenn heyri til.
Dómgæslu er hægt að ræða á kvöldfundum með þjálfurum og mótshöldurum. |
| Foreldar og stuðningsmenn liða
... |
| |
endurspegla þann anda sem er í hverju félagi. Víða um heim á knattspyrnumótum yngri flokka, er sú skoðun útbreidd, að krakkarnir séu frábærir, en foreldrarnir vandamál. Ef hinir fullorðnu leiða hugann að þessu, þá er þetta auðvitað til skammar. |
| Shellmótið hefur sínar ákveðnu reglur: |
| |
Í leik og umgengni. Engu að síður, þá hefur hvert lið sinn rétt til þess að kvarta og gera athugasemdir við framkvæmd mótsins eða hluta þess. Þetta er réttur hvers félags. Ef þú þarft að nota þennan rétt, gerðu það við rétta aðila. Segðu rétt frá, rólega og virtu ákvörðun mótshaldara, hver svo sem hún verður. |
| Óheimilt er að nota skó með skrúfuðum tökkum: |
| |
Ef leikmaður er í skrúfutakkaskóm
í leik þá mun dómari gera honum að yfirgefa völlinn skipta
um skó. |
| Áður en leikur hefst skulu lið
... |
| |
varamenn og þjálfarar safnast saman fyrir aftan markið fjær áhorfendum.
Þegar dómari gefur merki skulu liðin ganga í röð inn á völlinn að miðlínu. |
| Eflum íþróttaandann: |
| |
Það þarf ekkert að skilgreina þetta nánar, það vita allir við hvað er átt. |
| Allir með í öllum leikjum. |
| |
Shellmótsnefnd mælist til þess við þjálfara að allir leikmenn hvers liðs taki þátt í hverjum leik mótsins.
Ekki er sett skilyrði að allir spili jafn langan tíma. |
| Við skulum ... |
| |
koma fram fyrir hönd okkar félags með stolti og virðingu sem verður félagi okkar til framdráttar. |
| Að lokum: |
| |
Ekki einangra þitt lið. Kynnist öðrum liðum. Það skilst fljótt að við sameinumst öll í áhuga okkar á fótbolta og unglingastarfi. Látum þennan áhuga berast til næstu kynslóðar. |
| |
Efst á
síðu |
|
| |
| Umsjón síðu: shellmot@eyjar.is. |