Shellmótið 2006  
Vestmannaeyjum miðvikudaginn 28.júní til sunnudagsins 2.júlí
Forsíða Fréttir Úrslit dagsins Dagskrá Myndir
     
shellmot@eyjar.is

Shellmót 2005
     Þátttökufélög
 Dagskrá félaga
   Útimót
   Innimót
   Verðlaun og
 viðurkenningar
   Gestabók

Undirbúningur
   Umsókn/gjöld
 Póstlisti
   Reglur
 Til fararstjóra
 Til foreldra
 Dagskrá mótsins
 Mótssvæðið
   Eyjar í myndum
 Kort af Eyjum

Ýmislegt
   Símaskrá
   Shellmótslagið
   Vefvísir
   English summary

Eldri vefir
 2003
 2002
 2001
   2000
   1999
   1998
 1997

Póstur til ...
Shellmótsnefndar
Vefstjóra
Framkvæmdastj.

 
Myndasyrpa frá Eyjum
  
Það eru ótrúlega margir sem aldrei hafa komið til Eyja og þekkja ekkert til staðhátta hér. Við ætlum að bæta aðeins úr þessu og sýna Shellmótsgestum nokkrar myndir sem teknar voru í blíðskaparveðri eins og oft er á Shellmóti.
Ferðamáti
  Farþegar koma annað hvort sjóleiðis með Herjólfi eða flugleiðis með Flugfélagi Íslands, Íslandsflugi, Jórvík eða Flugfélagi Vestmannaeyja
   
Fjöll og klettar
  Í Vestmannaeyjum eru mörg þúsund örnefni og er nauðsynlegt fyrir þá sem ætla að dvelja í Eyjunum í nokkra daga að læra nöfn helstu fjalla, kletta og eyja. Settu þér það markmið að læra a.m.k. 5 örnefni.

Stolt Eyjanna er Heimaklettur, hæsta fjall á Heimaey, 283 metra hátt. Austan við Heimaklett er Miðklettur og þar austan við er Ystiklettur. Þessir þrír klettar mynda stórkostlega umgjörð utan um Klettsvík, þar sem Keikó er í kví sinni. Í Ystakletti er hellir, Klettshellir, og þangað inn fara allir þátttakendur á Shellmótinu í bátsferðinni með PH Víking. Inni í hellinum tekur skipstjórinn á snekkjunni væntanlega lagið á saxófóninn sinn.

Vestan og norðan við golfvöllin rís hár tindur, Blátindur. Hann er vestan megin við Herjólfsdal, en austan við dalinn er Fiskhellanef. Fyrir ofan stóra fótboltann er Háin. Klifið er kletturinn með öllum möstrunum, hann er fyrir ofan Friðarhöfn.

Allir þekkja Eldfellið sem varð til í gosinu 1973, vestan við Eldfellið er Helgafell sem er 5000 ára gamalt eldfjall.
   
Eyjar
Vestan við Heimaey sjáum við röð eyja og kletta. Syðst, það er lengst til vinstri er drangur er heitir Jötunn, þá kemur eyjan Hæna, Hani, Grasleysa og Hrauney þar á bak við eða vestan við. Vestur af Smáeyjum sjást Þrídrangar og þar fyrir sunnan Einidrangur.

Austan við Heimaey eru Elliðaey og Bjarnarey. Ef skyggni er gott sjáum við Heklu, Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul í baksýn, en þetta eru fjöll á stærstu eyjunni í Vestmannaeyjaklasanum, Íslandi.
   
Herjólfur
Herjólfur siglir frá Básaskersbryggju milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar einu sinni til þrisvar á dag. Allar nánari upplýsingar um ferðir Herjólfs fást í síma 481-2800.
   
PH Víking
  PH Víking er ferðamannaskip og fara allir þátttakendur á Shellmóti í siglingu með PH Viking. Það fer svolítið eftir veðri hvert verður siglt, því Óli Jóns, skipstjóri á PH Viking, reynir að velja siglingaleið svo enginn verði sjóveikur. Hafi einhver fullorðinna áhuga á er útgerðin líka með trilluna LUBBU sem nokkurs konar "úteyjataxa". Þeir sem þurfa að komast í úteyjar eða heim, geta pantað far með Lubbunni. Hafi einhver fullorðinna áhuga á að slást í för, fram og til baka, vinsamlegast hafið samband við PH Viking. Aðeins örfáir komast í hverja ferð með Lubbunni og ekki er rukkað mikið fyrir fargjaldið.
   
Þjónusta
FOTO ljósmyndaþjónusta. Frábær þjónusta fyrir ljósmyndara. Snöggir að framkalla filmurnar.
Framköllunarþjónusta er einnig í Bókabúðinni við Heiðarveg. 
Sjúkrahús og heilsugæsla, frábær þjónusta sem við vonum að enginn þurfi að nýta sér
   
Matvara
Í miðbænum er matvöruverslunin Vöruval í Kúluhúsinu. er með verslun  í miðbænum við Strandveg og svo er 11-11 búð vestur í bæ aðeins vestan við Hamarsskóla og Þórsheimilið. 
   
Máltíðir á Shellmóti
Á Shellmótum í gegnum tíðina hafa máltíðir þátttakenda á Shellmóti verið í Kíwanis húsinu við Strandveg. Gengið er inn að norðan verðu, gegnt Bæjarveitum Vestmannaeyja. Í ár munu mótsgestir væntanlega matast í nýju samkomuhúsi Eyjanna, Höllinni.
   
Veitingastaðir
Laterna er veitingastaður við Bárustíg við hliðina á Sparisjóðnum. 
Café María er á horni Vestmannabrautar og Skólavegar. 
Við Heiðarveg eru  Pizza 67 , Toppurinn og Shellskálinn, Tvisturinn.
   
Bakarí og konditori
  Magnúsarbakarí er við Vestmannabraut, Vilberg kökuhús er við Bárustíg og Arnór bakari við Strandveg. 
   
Íþróttaaðstaða
Leikir á Shellmóti fara fram á Þórsvelli, Týsvelli og úrslitaleikir á Hásteinsvelli
Auk þess eru tveir vellir í Eyjum sem ekki eru notaðir á Shellmóti, það er Helgafellsvöllur upp við Helgafell og malarvöllurinn í Löngulág.

Skrifstofa ÍBV er í Þórsheimilinu. Gestir á Shellmóti eru velkomnir þangað inn í setustofuna. Þar er sjoppa. 
Skrifstofa Shellmótsins og veitingasala er í Týsheimilinu. Týssalurinn, þar sem innanhússmót C- og D-liða fer fram, er á sama stað. Foreldraballið er í Týssalnum. Í Týsheimilinu eru allar upplýsingar um Shellmótið.

Íþróttahúsið er notað í innanhússmóti A- og B-liða, á kvöldvökunni á föstudagskvöldi og lokahófi á sunnudag. 
Í sama húsi er sundlaugin. Hver þátttakandi á Shellmótinu fær tvo miða í sund.

Inni í Herjólfsdal er búið að koma upp heljar miklu samkomutjaldi. Hafi einhver félög áhuga á að nýta sér þessa aðstöðu, þarf að fá leyfi hjá umsjónarmanni tjaldsins. Greiða þarf fyrir afnotin. Upplýsingar á skrifstofu Shellmótsins.
   
Gisting á Shellmótinu
Barnaskólinn, Hamarsskóli
   
Nánari upplýsingar um Vestmannaeyjar:
  www.vestmannaeyjar.is
Bókasafn Vestmannaeyja
Tölvun
 

     
Umsjón síðu: shellmot@eyjar.is.
    Skrifstofa Shellmóts Týsheimilinu v/Hástein S: 481-2861 Fax: 481-2751
    Póstföng: Shellmótnefnd & vefstjóri | Framkvæmdastjóri Shellmóts
    Upplýsingar: Shellmótsnefndin
     
    [Bókasafn Vestmannaeyja | Vöruvals-Pæjumót ÍBV | Vestmannaeyjar | Í.S.Í | Skeljungur | Pepsi | Tölvun í Eyjum ]