Shellmótið 2006  
Vestmannaeyjum miðvikudaginn 28.júní til sunnudagsins 2.júlí
Forsíða Fréttir Úrslit dagsins Dagskrá Myndir
     
shellmot@eyjar.is

Shellmót 2005
     Þátttökufélög
 Dagskrá félaga
   Útimót
   Innimót
   Verðlaun og
 viðurkenningar
   Gestabók

Undirbúningur
   Umsókn/gjöld
 Póstlisti
   Reglur
 Til fararstjóra
 Til foreldra
 Dagskrá mótsins
 Mótssvæðið
   Eyjar í myndum
 Kort af Eyjum

Ýmislegt
   Símaskrá
   Shellmótslagið
   Vefvísir
   English summary

Eldri vefir
 2003
 2002
 2001
   2000
   1999
   1998
 1997

Póstur til ...
Shellmótsnefndar
Vefstjóra
Framkvæmdastj.

 
Drög að dagskrá hvers dags (yfirlit)
  Velkomin | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur 
| Laugardagur | Sunnudagur | Mánudagur 
     
Velkomin til leiks
  Velkomin á Shellmótið 2004
Knattspyrnuveisla 6. flokks hefst miðvikudaginn 23. júní. 1000 strákar og 200 fararstjórar og fullt að aðdáendum

Dagskrá Shellmótsins er fjölbreytt að vanda og alltaf eitthvað skemmtilegt í boði. Auk allra fótboltaleikjanna, bæði inni og úti, þá er boðið upp á ýmsa skemmtan á meðan að mótið stendur yfir.
Efst á síðu

Miðvikudagur - Félögin koma, bátsferðir og rútuferðir.
  Þar sem setning Shellmótsins hefur verið færð yfir á fimmtudag, þá er aðeins formleg dagskrá fyrir sum félagana á miðvikudegi. Sum félög fara í rútuferðir og/eða bátsferðir, en öll félögin mæta í mat í Höllinni. 

Fararstjórafundur verður kl. 23.00 og að sjálfsögðu mæta allir fararstjórar þar og það stundvíslega.
Efst á síðu

Fimmtudagur - Fullt af leikjum
  Fyrstu leikir úti eru flautaðir á kl. 9.00 um morguninn og spilað verður úti allan daginn til kl. 18.00 á átta völlum. Leikið verður á Týs- og Þórsvelli. Fjórir vellir eru á hvoru svæði. Miðað er við að hvert lið spili 2 leiki úti á dag, einn fyrir hádegi og annan eftir hádegi. Leikjum er raðað þannig að A- og B-lið leika á völlum 1 og 2. C-lið leika á velli 3 og D-lið á velli 4. Völlur 4, bæði á Þórs- og Týsvelli eru aðeins minni en hinir.

Auk þess að spila alla þessa leiki úti, þá tekur helmingur liða þátt í innimóti þennan dag og hinn helmingurinn daginn eftir. A- og B-lið leika í íþróttahúsinu en C- og D-lið leika í Týssalnum. Hver leikur er 1 x 5 mínútur og 1 mínúta er á milli leikja til þess að undirbúa næsta leik. Fyrsti leikur byrjar nákvæmlega á auglýstum tíma, næsti leikur 6 mínútum seinna og þannig áfram þangað til úrslit fást í mótinu.

Það er ekki bara fótbolti, því að á fimmtudag og föstudag eru skipulagðar skoðunarferðir með rútu um Heimaey og bátsferðir með PH Víking fyrir hvert félag.

Setning mótsins er svo um kvöldið kl. 20.00. Að vanda verða ýmsar uppákomur á setningarathöfninni en dagskrá fer svolítið eftir veðri. Hefst athöfnin með skrúðgöngu frá Barnaskólanum. Mæting kl. 19.00. Liðin ganga fylktu liði að Týsvelli þar sem setningarathöfnin fer fram. Það má búast við því að mikið verði sungið í skrúðgöngunni og gaman verður að fylgjast með hvaða félag hefur bestu söngfuglunum á að skipa.
Efst á síðu

Föstudagur - Fleiri leikir og kvöldvaka
  Útileikir A-, B-, C- og D-liða byrja kl. 9.00. Flest lið leika tvo leiki utanhúss þennan dag. Seinni innanhússmótin, það er þau lið sem áttu frí á fimmtudeginum taka þátt í innanhússmóti síðdegis. Um kvöldið verður kvöldvaka í íþróttahöllinni með ýmsum skemmtiatriðum, heimatilbúnum og aðfengnum.

Að lokinni kvöldvöku er fararstjórafundur í íþróttahúsinu og dansleikur fararstjóra byrjar svo í Týssalnum kl. 23.00
Efst á síðu

Laugardagur - Undanúrslit, grill, þrautir og landsleikur
  Á laugardagsmorgun verða síðustu leikirnir spilaðir í riðlunum. Endanleg röðun liða í riðla ræðst oft ekki fyrr en síðasti leikur er flautaður af. Þar sem undanúrslit byrja strax eftir hádegi, þá eru forráðamenn hvers liðs beðnir að fylgjast vel með úrslitum og athuga hvar þeirra lið eiga að keppa og klukkan hvað. Þar sem aðrar reglur gilda um markamun á Shellmóti en hjá K.S.Í. þá þarf að gæta vel að niðurröðun liða í undanúrslit og athuga uppröðun á töflum Shellmótsnefndar í Týsheimili.

Eftir hádegi verða svo undanúrslit. Mikill spenningur er í leikjum liða, því mikið er í húfi. Auðvitað hvetja allir sín lið og verða jákvæðir.

Eftir leiki dagsins verða ýmsar þrautir við Týsheimilið og sendir hvert félag þátttakendur í hinar ýmsu þrautir. Að þrautum loknum verður heljarmikil grillveisla við Týsheimilið fyrir alla þátttakendur.

Um kvöldið verður svo spennandi leikur milli landsliðs Sellmótsins og pressuliðs er þjálfarar velja. Liðin keppa í sérmerktum búningum sem eru búnir til fyrir þennan leik. Hver leikmaður, sem tekur þátt í þessum úrvalsleik, fær að eiga sinn búning að leik loknum til minningar um þátttöku sína í leiknum.
Efst á síðu

Sunnudagur - Úrslitaleiki og lokahóf
  Á sunnudeginum eru kross leikir og úrslitaleikir Shellmótsins. Leikirnir fara fram á Þórsvelli, Týsvelli og Hásteinsvelli. Efstu lið, sem sigruðu í undanúrslitum á laugardegi, keppa kross leik um rétt til að leika til úrslita í sínum flokki á Shellmóti. Síðan keppir hvert lið einn leik um sæti. Það fer eftir árangri laugardagsins um hvaða sæti hvert lið keppir.

Það er til mikils að vinna í keppni um efstu sætin og reynir mikið á keppendur í þessum leikjum. Það reynir líka mikið á foreldra og þjálfara liðanna. Það er rétt að foreldrar og þjálfarar rifji upp alla góða siði áður en úrslitaleikir hefjast og verði félagi sínu til sóma, hvernig svo sem leikirnir fara.

Að loknum leikjum verður matarveisla í lok móts og síðar um kvöldið verður heljarmikil verðlaunaafhending í íþróttahöllinni og mótinu slitið eftir það.
Efst á síðu

Mánudagur - Allir heim
Mánudagurinn er ætlaður til heimferðar. Mörg lið fara með Herjólfi um morguninn eða með flugi. Nokkur lið fara með flugi á sunnudagskvöldinu strax eftir verðlaunaafhendingu. 
Efst á síðu

     
Umsjón síðu: shellmot@eyjar.is.
    Skrifstofa Shellmóts Týsheimilinu v/Hástein S: 481-2861 Fax: 481-2751
    Póstföng: Shellmótnefnd & vefstjóri | Framkvæmdastjóri Shellmóts
    Upplýsingar: Shellmótsnefndin
     
    [Bókasafn Vestmannaeyja | Vöruvals-Pæjumót ÍBV | Vestmannaeyjar | Í.S.Í | Skeljungur | Coca Cola | Tölvun í Eyjum ]