Shellmótið 2006  
Vestmannaeyjum miðvikudaginn 28.júní til sunnudagsins 2.júlí
Forsíða Fréttir Úrslit dagsins Dagskrá Myndir
     
shellmot@eyjar.is

Shellmót 2005
     Þátttökufélög
 Dagskrá félaga
   Útimót
   Innimót
   Verðlaun og
 viðurkenningar
   Gestabók

Undirbúningur
   Umsókn/gjöld
 Póstlisti
   Reglur
 Til fararstjóra
 Til foreldra
 Dagskrá mótsins
 Mótssvæðið
   Eyjar í myndum
 Kort af Eyjum

Ýmislegt
   Símaskrá
   Shellmótslagið
   Vefvísir
   English summary

Eldri vefir
 2003
 2002
 2001
   2000
   1999
   1998
 1997

Póstur til ...
Shellmótsnefndar
Vefstjóra
Framkvæmdastj.

Fréttir af Shellmótinu

Fréttir | 30.6.2005 20:59:40
Allar myndir komnar inn
Þá eru loksins allar myndirnar komnar inn á vefinn. Við biðjumst velvirðingar á þeim drætti sem varð á innsetningu sem orsakaðist m.a. af töpuðum tíma á mánudag og þriðjudag vegna flutnings tölvudeildarmanna á sínu hafurtaski frá mótssvæðinu. Varðandi spurningar um hvers vegna sum félög hafa litlar sem engar myndir inni á vefnum, þá hefur tölvudeildin alfarið sett ábyrgðina á fararstjóra liðanna að sjá um að taka myndir af sínu félagi og koma til tölvudeildar. En í öllu falli eiga öll félög nú myndir á myndavef Shellmótsins 2005. Takk fyrir þátttökuna.

Fréttir | 26.6.2005 23:29:39
Leiðrétting vegna landsleiks
Þau mistök urðu við vinnslu upplýsinga vegna landsleiks mótsins að nafn eins landsliðsmannanna vantaði. Jökull Starri Hagalín, Víkingur, var fulltrúi síns félags og stóð sig með miklum sóma. Hefur leiðrétting verið gerð á leikmannalista landsliðsins á vefsíðunni um leikinn (hér til hægri) sem og í pdf útgáfu laugardagsblaðs Shellmótsfrétta sem aðgengilegt hér á forsíðunni.

Fréttir | 26.6.2005 23:08:13
Shellmótinu lokið
Shellmótinu lauk í kvöld Í kvöld lauk Shellmótinu 2005 formlega með lokahófi og verðlaunaafhendingu í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Yfirlit yfir allar veittar viðurkenningar og verðlaun er að finna undir samnefndum lið hér til vinstri á síðunni.

Við viljum nota tækifærið og þakka öllum þátttökugestum fyrir komun til Eyja og fyrir gott og skemmtilegt mót. Við þökkum sömuleiðis öllum þeim sem heima sátu og fylgdust með mótinu í gegnum vefinn.

Fréttir | 26.6.2005 14:47:29
Fylkir Shellmótsmeistarar 2005
Rétt í þessu voru Fylkismenn að bera sigurorð af Blikum í úrslitaleik í keppni A-liða með fjórum mörkum gegn engu. Við óskum Fylkismönnum sem og Blikum innilega til hamingju með frábæran árangur á mótinu.

Nú er að hefjast afhending viðurkenningapeninga á Hásteinsvellinum. Þar fá allir þátttakendur viðurkenningapening fyrir þátttökuna í mótinu. Klukkan 18:30 í kvöld fer svo fram verðlaunaafhending og lokahóf mótsins.

Fréttir | 26.6.2005 14:03:43
Fylkismenn Shellmótsmeistarar B-lið
Rétt í þessu voru Fylkismenn að leggja Stjörnuna að velli í úrslitaleik B-liða með tveimur mörkum gegn engu.

Í leik um þriðja sætið í keppni A-liða sigraði Stjarnan Gróttu með einu marki gegn engu. Nú er að hefjast úrslitaleikur í keppni A-lið. Við minnum á lýsinguna frá leiknum hér til hægri.

Fréttir | 26.6.2005 13:27:53
Breiðablik Shellmótsmeistarar C-liða
Blikar urðu Shellmótsmeistarar C-liða nú rétt áðan þar sem þeir léku gegn Stjörnunni. Leikurinn endaði 2-2 en Blikar unnu á markareglu.

Í leik um þriðja sætið í keppni B-lið sigraði Þróttur Nes Gróttu með tveimur mörkum gegn engu.

Fréttir | 26.6.2005 12:00:18
Breiðablik Shellmótsmeistarar D-liða.
Breiðablik sigraði Stjörnuna 4-2 í fjörugum úrslitaleik D-liða. Grótta sigraði Víking í leik um þriðja sætið með sex mörkum gegn tveimur.

Í leik um þriðja sæti C-liða sigraði Stjarnan Fjölni með tveimur mörkum gegn einu.

Nú er að hefjast úrslitaleikur C-liða sem og leikur um þriðja sæti í keppni B-liða.

Fréttir | 26.6.2005 11:01:22
Lýsingar á úrslitaleikjum
Það lítur út fyrir að tæknilega vandamál hafi verið leyst og við getum líst úrslitaleikjunum hér á netinu. Tenglar inn á lýsingarnar eru hér til hægri á vefsíðunni. Síðurnar sem lýsingarnar birtast á eiga að uppfærast sjálfkrafa á einnar mínútu fresti.

Fréttir | 26.6.2005 10:08:16
Undanúrslitum lokið
Nú er ljóst hvaða lið keppa um efstu fjögur sætin Nú er ljóst hvað félög leika til úrslita á Shellmótinu 2005.

Í keppni A - liða: Breiðablik - Fylkir
Í keppni B - liða: Stjarnan - Fylkir
Í keppni C - liða: Breiðablik - Stjarnan
Í keppni D - liða: Breiðablik - Stjarnan

Fréttir | 25.6.2005 19:41:45
Beinar lýsingar úrslitaleikja
beinar lýsingar frá úrslitaleikjum á sunnudag Tölvudeildin stefnir að því að bjóða upp á beinar textalýsingar frá úrslitaleikjunum á morgun, sunnudag. Þetta er eingöngu háð því að tæknileg atriði standi ekki í vegi fyrir framkvæmdinni. Tenglar verða birtir á forsíðunni varðandi þessar lýsingar í fyrramálið.

Fréttir | 25.6.2005 19:38:35
Úrslit dagsins komin inn
Þá eru öll úrslit dagsins kominn inn á vefinn. Athugið að úrslit umspilsins eru birt í pdf skjali.

Fréttir | 25.6.2005 16:45:34
Lokastaða í riðlum - umspil í gangi
Nú er í gangi umspil í riðlum. Lokastaðan í öllum riðlum er komin inn undir útimót hér til vinstri og úrslit úr umspili fara að berast inn á vefinn hvað úr hverju.

Klukkan 18:30 í kvöld hefst svo þrautakeppnin og grillveislan. Kvöldið nær hámarki þegar landsliðið og pressuliðið mætast en liðin eru skipuð fulltrúum félaganna og valin af þjálfurum og fararstjórum.

Fréttir | 25.6.2005 13:43:33
Úrslit morgunsins
Öll óstaðfest úrslit morgunsins eru komin inn undir úrslit dagsins. Verið er að leggja lokahönd á niðurröðun umspilsleikja og verða þeir birtir hér á síðunni um leið og þeir eru tilbúnir.

Fréttir | 25.6.2005 12:19:02
Gestabókin
Við minnum vini og vandamenn sem heima sitja að senda sínum fulltrúum á mótinu kveðju í gegnum Gestabókina okkar. Kveðjurnar til félaganna verða síðan prentaðar út afhentar félögunum fyrir brottför á sunnudaginn og mánudaginn.

Fréttir | 25.6.2005 09:56:46
Síðasta umferðin hafin
Frá leikjum föstudagsins Síðasta umferð riðlakeppninnar er nú hafin. Mikil spenna ríkir í mörgum riðlunum og ljóst að í flestum þeirra mun það ráðast af leikjum morgunsins hvaða félög komast í umspil og eiga möguleika á sæti í úrslitaleikjum morgundagsins. Dálítil rigning er á mótsstað en horfur eru á að það muni stytta upp þegar líður á daginn.

Fréttir | 25.6.2005 02:03:04
Kvöldvakan
Tekið á því í reiptogi milli fararstjóra Í kvöld fór fram kvöldvaka Shellmótsins. Að vanda hófst hún á því að Shellmótslagið var sungið og í kjölfarið var reynt við heimsmeitið í Olé-Olé hávaða. Því næst var fulltrúum hvers félags afhentur bolti frá Íslandsbanka, en hver þátttakandi á mótinu mun hljóta slíkan bolta að gjöf. Eftir að fararstjórar og þjálfara höfðu reynt með sér í reiptogi stigu á stokk keppendur í hinu sívinsæla hamborgaráti. Mikil leynd hvílir yfir því hver fór með sigur af hólmi en úrslitin verða tilkynnt á lokahófinu á sunnudagskvöld. Að lokum steig töframaðurinn Lalli á svið og skemmti peyjunum.

Fréttir | 25.6.2005 01:58:30
Fleiri vídeóklippur og myndir
Nokkrum vídeóklippum, sérstaklega frá kvöldvökunni, hefur verið bætt inn. Þær eru aðgengilegar hér til hægri. Myndunum fjölgar stöðugt og er rétt að taka það fram við þá sem heima sitja að það getur tekið okkur nokkra klukkustundir að koma myndum inn á vefinn frá því þær berast okkur á tölvudeildinni.

Fréttir | 24.6.2005 20:06:15
Úrslit og staða í riðlum
Öll úrslit eftir fyrstu fjórar umferðir útimótanna eru komin inn ásamt stöðu í riðlum undir liðnum útimót hér til vinstri.

Fréttir | 24.6.2005 19:45:48
Innanhússmótum föstudags lokið
Innanhússmótum föstdagsins lauk nú á sjöunda tímanum. Í keppni A-liða sigruðu KA. Í keppni B-liða kom upp sú skemmtilega að staða að bæði b-lið Fjölnis komust í úrslitaleikinn. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 0-0 og ákváðu Fjölnismenn þá að semja um jafntefli og fengu leikmenn bæði silfur og gull fyrir vikið. Í C-liða keppninni sigraði Stjarnan og í D-liða keppninni voru það FH-ingar sem sigruðu. Við óskum leikmönnum allra þessara liða til hamingju.

Fréttir | 24.6.2005 13:54:17
Öll úrslit morgunsins komin inn
Þá eru öll úrslit í útileijum morgunsins kominn inn undir úrslit dagsins. Nú eru að hefjast fyrstu leikirnir í fjórðu umferð og klukkan 16:00 hefjast seinni innanhússmótin.

Við minnum á vídeóklippurnar sem eru komnar inn hér til hægri.

Fréttir | 24.6.2005 09:44:16
Fréttabréf Shellmótsins
Það er venja á Shellmótinu að gefa út dagblað hvern mótsdaganna og þetta árið er fréttabréfið aðgengilegt á vefnum undir samnefndum lið hér til hægri. Fréttabréfið er á pdf formi og því þarf Acrobat Reader til að lesa það.

Fréttir | 24.6.2005 09:38:33
Föstudagsleikir hafnir
Þá er keppni komin af stað á öðru degi Shellmótsins. Veðrið á mótsstað er svipað og í gær og aðstæður ágætar.

Í gær fór fram setning mótsins og í kjölfarið á henni fóru strákarnir margir hverjir á leik ÍBV og Vals.

Fréttir | 23.6.2005 19:32:19
Setning mótsins að hefjast
Þessir peyjar voru í skrúðgöngunni Rétt í þessu er skrúðganga með öllum félögunum að ganga inn á mótssvæðið í tilefni af setningu 22. Shellmótsins. Hápunktur setningarinnar er að sjálfsögðu kappleikur milli stjörnuliðs Ómars Ragnarssonar og úrvalsliðs fararstjóra og þjálfara. Setningunni lýkur með boðhlaupi milli félaganna og að setningu lokinn er öllum þátttakendum boðið á leik ÍBV og Vals í Landsbankadeildinni í knattspyrnu.

Fréttir | 23.6.2005 18:57:59
Öll úrslit dagsins komin inn
Öll úrslit í útimótum dagsins eru komin inn undir liðnum "úrslit dagsins" hér að ofan. Nú er verið að keyra stöðu töflur og vinna í að staðfesta úrslit og um leið og því er lokið verða töflur og staðfest úrslit sett inn undir liðinn útimót hér til vinstri á síðunni. Sama gildir um úrslit í innanhússmótum.

Fréttir | 23.6.2005 18:35:49
Innanhússmótunum lokið
Rétt í þessu var innanhússmótum fimmtudags að ljúka. Í flokki A-liða sigruðu Fylkismenn, í öðru sæti urðu Selfoss og þriðja sæti Breiðablik. Í keppni B-liða sigraði Fylkir, Breiðablik varð í öðru sæti og ÍBV í því þriðja. Fjölnismenn sigruðu C-liða mótið, Breiðalbik í öðru og Selfoss í þriðja. Það var svo Grótta sem sigraði, ÍBV varð í öðru sæti og Breiðablik í þriðja sæti.

Verið er að safna saman síðustu úrslitum dagsins fyrir útimótin og verða þau öll komin inn á vefinn innan skamms ásamt úrslitum í innanhússmótum dagsins.

Fréttir | 23.6.2005 13:17:37
Fyrstu umferð lokið
Helllooooo Fyrstu umferð mótsins lauk fyrir stundu. Nú stendur yfir hádegishlé og eru peyjarnir í mat í Höllinni þar sem þeir gæða sér á fiskibollum að hætti Gríms Kokks og félaga. Leikirnir fara aftur í gang klukkan 13:40 þegar önnur umferð mótsins hefst.

Fréttir | 23.6.2005 10:03:10
Dagskrá félaga
Fyrir þau ykkar sem heima sitja, en viljið fylgjast með ykkar drengjum þá getið þið skoðað dagskrá hvers félags undir liðnum "Dagskrá félaga" hér til vinstri. Til þess að skoða dagskrána þarftu að geta opnað PDF skjöl.

Fréttir | 23.6.2005 09:46:24
Fyrstu leikjum mótsins lokið
Nú er fyrstu leikjum mótsins að ljúka og úrslit farin að berast í hús. Veður á mótsstað er mjög gott, hægviðri og bjart. Við minnum á úrslit dagsins hér að ofan.

Fréttir | 23.6.2005 02:58:00
Shellmótið 2005 hafið!
Fyrstu mótsgestirnir Shellmótið 2005 er nú hafið. Fyrstu leikirnir hefjast klukkan 8:40 og mótið verður svo formlega sett klukkan 19:15 í kvöld. Við vekjum á að úrslit dagsins eru aðgengileg undir samnefndum tengil í haus síðunnar hér að ofan. Alla jafna ættu úrslit úr leikjum að vera komin inn ekki seinna en klukkustund eftir lok leiks, en í flestum tilfellum fyrr. Fyrstu myndirnar eru að detta inn hjá okkur og munum við gera okkar best í því að koma þeim inn á vefinn hratt og örugglega. Fljótlega er svo stefnan að bæta við myndbandsklippum og viðtölum við mótsgesti. Verið því dugleg að fylgjast með hér á síðunni.

Fréttir | 22.6.2005 22:30:03
Riðlaskipting - breytingar
Riðlaskiptingin hefur verið uppfærð á vefnum í samræmi við þær breytingar sem hafa verið gerðar síðustu daga. Sem fyrr er riðlaskiptingin aðgengileg undir tenglinum útimót hér til vinstri á síðunni.

Fréttir | 22.6.2005 17:04:31
Samskiptaleiðir við tölvudeild
Besta leiðin til að ná sambandi við tölvudeild Shellmótsins með athugasemdir við vefinn, upplýsingaöflun og annað slíkt er að senda okkur póst á shellmot@eyjar.is. Við erum einnig með MSN netfang fyrir þá sem nota MSN Messenger, en það er shellmot@hotmail.com. Einnig erum við með Skype símaforritið undir notendaheitinu shellmotid.

Fréttir | 21.6.2005 00:27:54
Dagskrá félaga
Þá er dagskráin komin hingað inn á vefinn. Smellið hér til að sækja hana. Excel skjalið inniheldur dagskrá allra félaganna þannig að þið fiskið út það sem ykkur tilheyrir. Uppbrotin dagskrá hvers liðs verður sett á vefinn annað kvöld til að auðvelda þeim sem heima sitja að skoða dagskrá síns félags. Við biðjumst velvirðingar á þeim drætti sem hefur orðið að koma þessu til ykkar en eins og fram hefur komið hafa ýmsar ástæður spilað þar inn í. Við minnum alla sem hafa spurningar að beina þeim til framkvæmdastjóra mótsins í síma 860 2207.

Varðandi pistlana sem nokkur félag hafa sent okkur síðustu daga þá munum við setja þá inn á heimasíðuna á næstu tveimur dögum inn á þar til gerða vefsíður félaganna. Góða ferð til Eyja!

Fréttir | 20.6.2005 10:07:04
Nafnalistar
Við viljum biðja forráðamenn félaganna að fylla út nafnalista og senda okkur. Listinn skal fylgja þeirri framsetningu sem kemur fram í EXCEL skjalinu sem þið getið sótt með því að smella hér. Vinsamlegast sendið nafnalistann útfylltan á shellmot@eyjar.is og gefið skránnið nafnið "nafnalisti_felag", þ.e. í tilviki ÍBV yrði nafnið á skránni "nafnalisti_IBV".

Fréttir | 20.6.2005 00:05:10
Af dagskrá félaganna
Fyrir nokkrum dögum var uppkast að dagskrá félaganna sent á forráðamenn þeirra og þeirra sem þess höfðu óskað. Skýringar á þeim drætti sem orðið hefur á því að koma dagskránni inn á vefinn liggur í því að vegna þess að félög hafa verið að breyta tilkynntum liðafjölda og því hefur þurft að endurraða dagskránni. Nú er unnið hörðum höndum að lokaútgáfu og verður hún bæði sett inn á vefinn og send út á póstlistann um leið og þetta er tilbúið. Þeir sem vilja eintak sendi póst á shellmot@eyjar.is

Fréttir | 12.6.2005 20:51:20
Dagskrá hvers félags
Við erum að vinna við að raða niður leikjum hvers félags, matartímum, báts- og útuferð. Áætlað er að dagskrá hvers félags verði tilbúin til dreifingar miðvikurdaginn 15. júní og verður hún birt hér á vefnum næstu daga á eftir.

Þeir sem vilja fá dagskrá síns félags senda um leið og hún er tilbúin eru beðnir að skrá sig á póstlistann og geta þess í hvaða félagi þeir eru. Sendið póst á shellmot@eyjar.is

Fréttir | 6.6.2005 01:22:23
Riðlaskipting Shellmótsins tilbúin
Riðlaskiptingin fyrir Shellmótið er tilbúin og komin á vefinn. Hægt er að skoða hana undir tenglinum útimót hér til vinstri eða með því að smella hér.

Vinna við dagskrá félaga er hafinn og verða drög birt hér á vefnum um leið og þau eru tilbúin.

Fréttir | 3.6.2005 03:07:55
Þrjár vikur í mót
Nú eru aðeins þrjár vikur í Shellmótið í Eyjum 2005. Enn eiga nokkur félög eftir að skila inn rafrænni umsókn. Vinsamlegast gangið frá því strax. Við þurfum þessar upplýsingar frá öllum félögum á rafrænu formi hvort sem forráðamenn hafa rætt við framkvæmdarstjóra mótsins eður ei.

Fljótlega verður dregið í riðla og um leið og því er lokið birtum við riðlaskiptinguna hér á vefnum.

Við minnum á listana "Til foreldra" og "Til fararstjóra" hér til vinstri. Gangi ykkur vel í undirbúningnum.

Fréttir | 14.5.2005 19:32:57
Skráningar
Við biðjum félögin vinsamlegast að tilkynna þátttöku í gegnum vefinn með skráningarforminu. Enn eiga nokkur félög eftir að skrá lið sín. Athugið að þið þurfið að tilkynna þátttöku í gegnum vefinn jafnvel þótt þátttaka hafi verið tilkynnt til framkvæmdastjóra. Við biðjum ykkur einnig um að áætla þátttakendafjölda eins nákvæmlega og kostur er.

Fréttir | 10.5.2005 14:05:54
Reikningur fyrir staðfestingargjald
Við minnum félögin á að greiða staðfestingargjöldin sem allra fyrst. Upplýsingar um reikningsnúmerið er að finna hér að neðan.

Hlaupareikningur í Íslandsbanka Vestmannaeyjum nr. 3234
það er banki / höfuðbók /númer : 0582 - 26 - 3234 kennitala 680197-2029
Vinsamlegast sendið kvittun á:
Shellmótið í Eyjum
Hörður Óskarsson
Hrauntún 12
900 Vestmannaeyjar

Fréttir | 2.5.2005 18:44:07
Skráning
Skráningin stendur nú yfir. Við vekjum athygli á því að farið verið yfir og ákvörðun tekin varðandi óskir félaga sem ekki koma með fjögur lið til keppni, hvaða mót (a,b,c,d) þau verða skráð í þegar allar umsóknir hafa borist. Þangað til birtist á umsóknarsíðunni hvaða lið félögin óska eftir að koma með í mótið.

Fréttir | 25.4.2005 16:35:04
Upplýsingar um Shellmótið
Þeir sem hafa fyrirspurnir um eitthvað varðandi Shellmótið 2005 er bent á að senda okkur póst á shellmot@eyjar.is eða hringja í Einar Friðþjófs framkvæmdastjóra mótsins í síma 860 2207.

Fréttir | 21.4.2005 21:38:56
Skráning hafin
Skráning á Shellmótið er nú hafin. Forsvarsmenn félaganna eru beðnir um að fylla út umsókn fyrir sitt lið sem fyrst. Vinsamlegast fyllið út í öll viðeigandi svið til að forðast tímafreka eftirvinnslu fyrir mótshaldara. Við minnum svo á að staðfestingargjöldin skulu greiðast fyrir 10. maí næstkomandi. Sjáumst á Shellmótinu í Eyjum.

Fréttir | 18.4.2005 19:01:17
Vefurinn kominn upp
Þá er vefurinn fyrir mótið 2005 loksins kominn upp eftir að nokkur tæknileg vandamál höfðu tafið fyrir. Við erum að vinna að því að uppfæra þær upplýsingar sem mótsgestir þurfa að hafa aðgang að, en í grunninn gildir flest það sem hér stendur nú þegar.

Umsóknarformið verður tilbúið í vikunni og verður sendur tölvupóstur á póstlistann þegar að þeim kemur. Þeir sem vilja skrá sig á póstlistann er bent á að senda okkur póst á shellmot@eyjar.is



    Skrifstofa Shellmóts Týsheimilinu v/Hástein S: 481-2861 Fax: 481-2751
    Póstföng: Shellmótnefnd & vefstjóri | Framkvæmdastjóri Shellmóts
    Upplýsingar: Shellmótsnefndin
     
    [Bókasafn Vestmannaeyja | Vöruvals-Pæjumót ÍBV | Vestmannaeyjar | Í.S.Í | Skeljungur | Coca Cola | Tölvun í Eyjum ]